Ísland - kjörið til hjólreiða Prenta Rafpóstur
Höfundur: Fjölnir Björgvinsson   
föstudagur, 11 desember 2009

Bike forsíðanÞrír frægustu fjallahjólarar heimsins segja single track leiðir þær sem Magne Kvam fór með þá að Fjallabaki 2009 vera með þrem bestu og flottustu hjólaleiðum heims og hafa þeir hjólað út um allan heim! Merkilegt. Bike Magazine titlar ferðina ferð ársins, “trip of the year 2009”, og myndina af Bláhnjúk mynd ársins, “picture of the year 2009”, í Bike Magazine tímaritinu. Það kemur kannski einhverjum á óvart að landið okkar bjóði upp á fjallahjólaleiðir á heimsvísu - en það vita þeir sem reynt hafa.

Sjá nánar um greinina og myndir hér: http://www.voffi.org/viewtopic.php?t=1092

Munum að vera tillitsöm við gangandi á þessum slóðum og að akstur utan vega er stranglega bannaður og á ekki að sjást. Göngum um náttúruna af virðingu.  Mottóið okkar er: Skiljum hvergi eftir för - e. leave no trace.

Hér er hægt að nálgast eina af myndunum í góðri upplausn og nota sem bakgrunn í tölvunnu: http://bikemag.com/features/onlineexclusive/wallpapers/

bakgrunnsmynd

 

Bike forsíðan

 
< Fyrri   Næsti >

Free Joomla Templates By Joomlashack